Fáðu krydd í tilveruna: Námskeið um ræktun kryddjurta
Áhugi fólks á kryddjurtum hefur vaxið mjög á undanförnum árum og framboð af ferskum kryddjurtum í verslunum hefur aukist mikið. Ferskleikinn er afar mikilvægur til að kryddjurtir njóti sín til fulls og því fátt betra en að hafa aðgang að þeim beint úr eigin ræktun. Á námskeiðinu verður fjallað um ræktun og notkun helstu tegunda kryddjurta sem þrífast utandyra hér á landi.
Skráningarfrestur er til 5. apríl 2011. Lesa meira um námskeiðið hér.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru ræktunarskipulag, sáning, forræktun, plöntun, jarðvegur, áburðargjöf, umhirða, plöntuheilbrigði, uppskera, geymsla og ræktun innandyra.
Comments are closed.