Trjárækt á sumarhúsalóðum
Námskeið fyrir áhugafólk um trjá- og skógrækt á sumarhúsalóðum.
Fjallað verður um trjá- og runnategundir sem henta vel við ólíkar aðstæður t.d. rýran jarðveg og veðurálag. Sérstök áhersla verður lögð á staðsetningu í landi, framkvæmd útplöntunar, m.t.t. ólíkra stærða og tegunda, áburðargjöf, flutning trjáa, gerð skjólbelta og tegundir sem henta í skjólbelti.
Skráningarfrestur er til 5. apríl 2011. Lesa má meira um námskeiðið hér.
Comments are closed.