Asparglytta – gullinn nýbúi
Asparglyttan er nýr skaðvaldur á íslenskum trjám. Hún virðist fyrst og fremst leggjast á aspir og víðitegundir.
Samkvæmt heimildum frá Náttúrufræðistofnun Íslands fannst hún í fyrsta sinn árið 2005 í reit Skógræktar ríkisins á Mógilsá.
Glyttan étur mjúka vefi laufblaða og skilur eftir sig dökkbrún skemmd blöð. Asparglyttan virðist ekki eiga sér marga náttúrulega óvini, t.d. virðast fuglar ekki líta við henni enda framleiðir glyttan eitur sem fer illa í maga. Eitrið er sagt vera skilt aspiríni og maður veltir fyrir sér hvort taka megi nokkrar bjöllur gegn vægum hausverk?
Bjöllurnar virðast geta þroskað margar kynslóðir á einu sumri, t.d. er áberandi mikið af bjöllum á ferli núna í lok september, sem kemur nokkuð á óvart m.t.t. þeirra köldu nótta sem verið hafa að undanförnu.
Lesa má meira um asparglyttur á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands
Heimildir: Náttúrufræðistofnun Íslands.
Myndir: Egill Þorsteins, Kjartan Gíslason, EFLA verkfræðistofa.
Comments are closed.