Vinnan í garðinum – handbók um garðverkin
Sala bókarinnar “Vinnan í garðinum”, sem gefin er út í samstarfi við Blómaval, fer vel af stað. Nú þegar eru rúmlega 1000 eintök seld. Höfundar bókarinnar, þeir Baldur Gunnlaugsson, Magnús Bjarklind, Björn Gunnlaugsson og Sveinn Aðalsteinsson hafa komið að kynningum í verlsunum Blómavals. Almennt eru garðeigendur mjög ánægðir með framsetningu efnis í bókinni, sem er ríkulega myndskreytt og textar settir fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Á myndinni hér að ofan sjást þeir Baldur Gunnlaugsson og Björn Gunnlaugsson á spjalli við áhugasama garðeigendur í Blómaval.
Garðverkin – handbók um vinnuna í garðinum
Bókin er skrifuð með það í huga að lesandinn hafi ekki áralanga reynslu eða menntun í garðyrkju en hafi áhuga á að reyna sig við garðverkin og njóta til þess leiðsagnar fagmanna. Bókin hefst á því sem flestir nýbakaðir garðeigendur byrja á að fást við þ.e. á grasflötinni og umhirðu hennar. Eftir því sem líður á texta koma frekari lýsingar á fjölbreyttari garðverkum t.d. gróðursetning og umhirða sumarblóma, fjölæringa, trjáa og runna. Markmið höfunda er að kynna sem flest garðverk á auðskiljanlegan hátt en síðan geta áhugasamir leitað sér frekari fróðleiks á námskeiðum eða tileinkað sér fróðleik á netinu. Verkunum í garðinum lýkur aldrei hjá áhugasömum eiganda eða notanda og sífellt er hægt að bæta við tegundum til skrauts eða nytja.
Við sem að þessari bók stöndum höfum allir áralanga menntun og reynslu við byggingu og umhirðu garða og jafnframt stundað kennslu í garðyrkjuskólum, bæði á Íslandi og erlendis. Það var markmið okkar hafa myndefnið ríkulegt og leiðbeiningar skýrar og einfaldar. Höfundar texta eru, þeir Magnús Bjarklind, Baldur Gunnlaugsson, Björn Gunnlaugsson og Sveinn Aðalsteinsson.
Bókin er seld í verslunum Blómvals / Húsasmiðjunnar og kostar aðeins 1.490 kr. sjá nánar hér
Comments are closed.