Fallegur garður – hærra söluverð fasteignar
Fallegur garður í góðri umhirðu getur haft stór áhrif á verðgildi fasteignar. Þetta sýnir skýrslan: „Global Garden Report 2011“. Skýrslan byggir á viðtölum við 5.000 garðeigendur og við 44 fasteignasala frá níu löndum í fjórum heimsálfum.
Verðhækkun upp á 16%
Ef garðurinn er huggulegur og vel við haldið getur það þýtt allt að 16% hækkun á söluverði hússins. Sé garðinum illa við haldið getur það haft neikvæð áhrif á söluverð sem nemur allt að 15% lækkun söluverðs. Fyrir utan verðáhifin sýnir skýrslan einnig að fasteignir með fallegum görðum seljast allt að tveimur mánuðum fyrr en fasteign með illa hirtum garði.
Grasflötin er mikilvægust
Meðal þeirra fimm svæða sem hafa mest jákvæð áhrif á útlit garðins er grasflötin efst á blaði. Grasið skal vera í góðri umhirðu. Einnig skiptir sólpallurinn, fagrir gangstígar, falleg tré og runnar miklu þegar kaupandi metur garðinn.
Þreföld endurgreiðsla fjármuna
Byggt á upplýsingum frá 122 garð- og landslagsarkitektum, álykta skýrsluhöfundar einnig að þeir fjármunir sem húseigandi fjárfestir í vel útfærðum og vel við höldnum garði fáist þreföld upphæðin til baka við sölu fasteignar.
(Ofangreindar upplýsingar eru af heimasíðu fagfélags danskra garðyrkjuverktaka http://www.dag.dk)
Comments are closed.