Ber verktaki ábyrgð? – um ábyrgðasjóð Samtaka Iðnaðarins

Ber verktaki ábyrgð? – um ábyrgðasjóð Samtaka Iðnaðarins

Hvernig má tryggja að verklegar framkvæmdir séu í samræmi við viðurkennd fagleg vinnubrögð og að verktaki beri ábyrgð á gæðum verksins?

Félag Skrúðgarðyrkjumeistara er hluti af Meistaradeild Samtaka Iðnaðarins.

Tilgangur með Ábyrgðasjóðnum er að skapa traust milli viðskiptavina og verktaka sem starfa innan Meistaradeildar byggingagreina Samtaka iðnaðarins. Þannig megi einnig tryggja viðskiptavinum félags skrúðgarðyrkjumeistara að verkið sé faglega unnið og í samræmi við skriflegt samkomulag.

  • Að baki Ábyrgðasjóði MSI standa Samtök iðnaðarins og sex meistarafélög.
  • Ábyrgðasjóður MSI er ætlað að skapa traust milli verkkaupa og verktaka.
  • Telji verkkaupi vinnubrögð verktaka ekki uppfylla væntingar getur hann skotið máli sínu til Úrskurðarnefndar MSI
  • Allir félagsmenn Meistaradeildar SI eru löggiltir iðnmeistarar og eiga aðild að Ábyrgðasjóði MSI.
  • Skriflegur verksamningur milli verkkaupa og verksala er skilyrði þess að verkkaupi geti vísað máli sínu til Úrskurðarnefndar MSI. Ágreiningi vegna reikningagerðar, verktíma og álíka atriða er ekki hægt að vísa til Úrskurðarnefndar MSI. Einungis er úrskurðað um meint ófagleg vinnubrögð.
  • Sjóðurinn tekur ekki á málum vegna efnisgalla eða galla sem stafa af röngum upplýsingum framleiðenda.
  • Einungis einstaklingar og húsfélög geta notið bóta úr Ábyrgðasjóði MSI.
  • Úrskurðarnefnd MSI tekur ekki fyrir mál gagnvart fyrirtækjum.
  • Hámarks bótafjárhæð er 2.000.000 kr.
  • Úrskurðarnefnd MSI fjallar ekki um mál þar sem samningsupphæð er lægri en 100.000 kr. né hærri en 25.000.000 kr. með VSK.
  • Málskotsgjald er 15.000 kr. Til þess getur komið að sá sem tapar máli greiði útlagðan kostnað að hámarki 100.000 kr.

Úrskurðarnefnd

Ef upp koma ágreiningsmál vegna vinnu er málinu vísað til úrskurðarnefndar MSI.

Einstaklingar sem eigendur, leigjendur eða búseturétthafar og húsfélög geta leitað til Úrskurðanefndar hafi þeir gert skriflegan samning við félagsmann MSI um ákveðið verk á íbúðarhúsi, frístundahúsi eða sameign.

Aðild að Úrskurðarnefnd eiga Meistaradeild byggingagreina innan Samtaka iðnaðarins, Neytendasamtökin og Húseigendafélagið.

Í hverju felst trygging Ábyrgðasjóðs?

Standist vinna af einhverjum ástæðum ekki þær kröfur sem viðskiptavinur gerir til verksins getur hann lagt málið fyrir Úrskurðarefnd MSI með því að fylla út viðeigandi eyðublað frá SI og leggja fram skrifleg gögn kvörtuninni til stuðnings. Úrskurðarnefndin mun þá snúa sér í fyrstu til Meistarafélags viðkomandi félagsmanns sem hefur 14 daga til að leysa úr ágreiningi. Takist það ekki tekur Úrskurðarnefndin málið fyrir.

Ef úrskurður nefndarinnar er á þá leið að verkinu sé ábótavant bætir Ábyrgðarsjóður tjónið með því að láta klára eða laga tiltekið verk.

Hámarksbótafjárhæð er 2.000.000 kr.

Skilyrði fyrir ábyrgð sjóðsins er að skriflegur samningur um verkefnið hafi verið gerður milli viðskiptavinar og verktaka og að verktaki sé félagsmaður innan MSI.

Lesið meira um ábyrgðasjóð MSI á heimasíðu Samtaka Iðnarins www.si.is

Skrúðgarðyrkja er löggilt og lögvernduð iðngrein. Aðeins þeir sem lokið hafa námi í skrúðgarðyrkju, staðist sveinspróf, lokið meistaranámi og eru meðlimir í félagi skrúðgarðyrkjumeistara tilheyra Meistarafélagi Samtaka Iðnarins.

Twitter Digg Delicious Stumbleupon Technorati Facebook

Comments are closed.