GARÐYRKJU- NÁMSKEIÐ HORTICUM
Horticum menntafélag heldur nokkur spennandi námskeið fyrir garðáhugafólk á vormisseri 2013
Námskeiðin eru haldin í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands við Dunhaga, sjá nánar hér að neðan. (Smellið á yfirskrift námskeiðs til að lesa meira um námskeið og skráningu).
Ræktun matjurta í heimilisgarðinum (11. og 13. mars)
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í matjurtaræktun með því markmiði að þeir geti sjálfir hafið ræktun matjurta í eigin garði.
Hagnýt jarðgerð – molta og aðrir lífrænir áburðargjafar (12. og 14. mars)
Það hefur færst mikið í vöxt að garðeigendur komi sér upp safnhaugum í görðum sínum og jarðgeri lífrænan úrgang sem fellur til í görðum og eldhúsum. Afurð
jarðgerðarsem kallast molta og fjölmargir aðrir lífrænir áburðargjafar, nýtast vel við alla ræktun svo sem í garðinum eða sumarhúsalandinu.
Vorverkin í garðinum – almenn umhirða og viðhald (18. og 20. mars)
Námskeið um vandaða umhirðu og viðhald á einka-, fjölbýlishúsa- og sumarhúsalóðum. Tekin eru fyrir öll helstu vorverk garðeigandans, m.a. trjá- og runnaklippingar,viðhald grassvæða, áburðargjöf, útplöntun o.fl.
Fáðu krydd í tilveruna – Námskeið um ræktun kryddjurta (19. mars)
Áhugi fólks á kryddjurtum hefur vaxið mjög á undanförnum árum og framboð af ferskum kryddjurtum í verslunum hefur aukist mikið. Ferskleikinn er afar mikilvægur til að kryddjurtir njóti sín til fulls og því fátt betra en að hafa aðgang að þeim beint úr eigin ræktun. Á námskeiðinu verður fjallað um ræktun og notkun helstu tegunda kryddjurta sem þrífast utandyra hér á landi.
Trjárækt á sumarhúsalóðum (8. apríl)
Námskeið fyrir áhugafólk um trjá- og skógrækt á sumarhúsalóðum. Fjallað verður um trjá- og runnategundir sem henta vel við ólíkar aðstæður t.d. rýran jarðvegogveðurálag. Sérstök áhersla verður lögð á staðsetningu í landi, framkvæmd útplöntunar, m.t.t. ólíkra stærða og tegunda, áburðargjöf, flutning trjáa, gerð skjólbelta og tegundir sem henta í skjólbelti.
Comments are closed.