Norræni bygginga- markaðurinn tekur höndum saman um sjálfbærni
Þann 8. ágúst undirrituðu 20 stjórnendur úr norræna byggingaiðnaðinum Nordic Built sáttmálann í Kaupmannahöfn, og sýndu þar með vilja sinn til breytinga. Með undirskriftinni skuldbinda þeir sig til þess að fylgja tíu meginreglum í starfi sínu og fyrirtækja sinna, og gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að þróa samkeppnishæfar lausnir í sjálfbærri mannvirkjagerð.
Alls skrifuðu fjórir aðilar undir sáttmálann fyrir hönd íslenskra fyrirtækja og stofnana að þessu sinni, en það voru fulltrúar frá Vistbyggðarráði, Framkvæmdasýslu ríkisins, EFLU verkfræðistofu og Batteríinu arkitektum. Unnið verður að því á næstu vikum og mánuðum að kynna bæði verkefnið og markmið sáttmálans. Það verður vonandi til þess að fleiri aðilar á norrænum byggingamarkaði skrifi undir sáttmálann í þeim tilgangi að efla sjálfbærni í eigin starfsemi sem og mannvirkjagerð almennt.
Fulltrúar frá Nordic Innovation og íslensku aðildarfélaganna að sáttmálanum munu kynna verkefnið á opnum fundi Í Reykjavík þann 13. september næstkomandi og eru stjórnendur sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Íslandi sem koma að byggingu og rekstri mannvirkja og áhuga hafa á sjálfbærni og norrænni samvinnu hvattir til að mæta og kynna sér sáttmálann. (Texti og ljósmynd: Vistbyggðarráð).
Comments are closed.