Grassláttur – Skemmdir á trjágróðri
Nú er grasslátturinn hafinn í Reykjavík enda hefur grassprettan verið góð þrátt fyrir kuldakastið í maí.
Á meðfylgjandi myndum má sjá skemmdir á trjástofnum eftir sláttuorf. Umræddum trjám var plantað út vorið 2011 í mön við Miklubraut. Strax á fyrsta sumri voru flest trén mikið skemmd vegna sláttar á aðliggjandi grassvæðum. Einnig gleymdist að binda upp trén þannig að þau ultu til í vindinum og fóru sum á hliðina í vetur. Bætt var úr uppbindingum í vor.
Fyrsti sláttur ársins byrjar ekki vel og auðséð að þeir sem framkvæma sláttinn hafa ekki fengið leiðbeiningar um slátt við trjágróður. Flest ef ekki öll trén eru mikið skemmd, líklega ónýt, eftir nælonþráð sláttuorfsins og lélegan frágang við útplöntun.
Þetta undirstrikar mikilvægi þess að uppbygging og umhirða grænna svæða sé framkvæmd af fagmönnum.
Comments are closed.