Ræktun matjurta í heimilisgarðinum
Námskeið hjá Endurmenntun HÍ 12. og 14. mars 2012
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í matjurtaræktun með því markmiði að þeir geti sjálfir hafið ræktun matjurta í eigin garði.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:
•”Mjög fróðlegt og skemmtilegt.”
•”Gott námskeið fyrir þann sem langar að byrja að rækta en kann lítið.”
•”Mjög góð praktísk ráð. Afslappandi og fræðandi kvöld um “jarðbundið” efni.”
Skráningarfrestur er til 5. mars 2012.
Lögð verður áhersla á að fjalla um ræktunaraðferðir sem eru í sátt við umhverfið. Fjallað verður um skipulag matjurtagarðsins og staðarval, jarðvinnslu, áburðargjöf, forræktun eigin smáplantna, sáningu, grisjun og gróðursetningu, notkun gróðurhlífa og yfirlagsefna, umhirðu á ræktunartíma, plöntusjúkdóma, meindýr og illgresiseyðingu. Loks verður fjallað um ræktun á algengum tegundum matjurta og geymslu matjurta.
Comments are closed.