Jarðlagnatækni – Mímir Símenntun

Jarðlagnatækni – Mímir Símenntun

Horticum menntafélag og Félag skrúðgarðyrkjumeistara leiðbeina nemendum í jarðlagnatækni

Í náminu er meðal annars fjallað um hellulagnir, kantsteina og tröppur. Einnig um yfirborðsfrágang á gróðursvæðum, svo sem þökulagnir, útplöntun, flutning trjágróðurs o.fl. Í lok þessarar námslotu þurfa nemendur að leysa verklegt verkefni í hellulgöngum. Verkefnið felst í að helluleggja tvo palla með tröppum á milli. Einnig þarf að koma fyrir niðurfalli á réttum stað með réttum vatnshalla. Leiðbeinendur í verklega hlutanum voru Steinþór Einarsson og Baldur Gunnlaugsson Skrúðgarðyrkjumeistarar._MG_5247

BM Vallá studdi við verkefnið með rausnarlegu framlagi af hellum og kantsteinum.

Um námið: Nám í jarðlagnatækni er ætlað þeim sem vinna við nýlagnir, endurbætur, viðhald og viðgerðir rafstrengja, vatnslagna, hitalagna, fjarskiptalagna og fráveitna í jörð. Jarðlagnatækninámið er 300 kennslustundir og hefur menntamálaráðuneytið samþykkt að meta megi námið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla. Náminu er ætlað að auka verkgæði, draga úr mistökum og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms.

Meðal námsgreina eru jarðlagnir, jarðvegsfræði, tölvur, vélfræði, stærðfræði, rafmagnsfræði, námstækni og fleira. Lögð er áhersla á að tengja námið við raunhæf verkefni og að gefa nemendum tækifæri til verklegrar þjálfunar. Sjá nánar um námið hér.

Twitter Digg Delicious Stumbleupon Technorati Facebook

Comments are closed.