Stórvaxin meindýr í trjágróðri!

Stórvaxin meindýr í trjágróðri!

Víða eru kanínur þekktar fyrir að skemma trjágróður og þá sérstaklega nýjar trjá- og runnaplöntur. Þegar börkur trjánna verður eldri og harðari þykja þau ekki eins lystug.

Það er ekki annað að sjá en íslenskur trjágróður hafi eignast nýjan óvin, meindýr í stærri kantinum, sbr. myndir hér að neðan af skemmdum og ónýtum trjám í Nauthólsvík.

Ljóst er að garðeigendur og þá sérstaklega stærri rekstraraðilar grænna svæða þurfa að tileinka sér þær aðferðir sem notaðar eru í nágrannalöndum okkar gegn nagdýrum, m.a. pappahólka um stofn, og/eða vírnet á meðan trén eru að ná þroska færast neðar á matseðli nagdýranna.

IMG_9325IMG_9324IMG_9322

Twitter Digg Delicious Stumbleupon Technorati Facebook

Comments are closed.